6.12.2009 | 21:22
Aumingja María!!!!!
Hún María okkar varð fyrir því óláni að vinna 16 flöskur í tvöfaldum vínpotti í gær. Ég hugsa að það verði stanslaust "kósýkvöld" með rauð-, hvít-eða freyðivínsglasi og arineldi fram að jólum jafnvel lengur, ekki öfundsverð þar. Ég hugsa að þetta gæti endað með því að þriðja barnið fæðist eftir 9 mánuði nema að það taki Bjarka Þór á þetta og komi fyrr eða eftir 7 mánuði. Ég get aðeins ráðlagt henni eitt og það er að gefa mér pottinn, ég skal fórna mér fyrir hana.
Kveðja Dagga sem er vinur í raun
Vinir og fjölskylda | Breytt 7.12.2009 kl. 08:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2009 | 21:46
Vín vín og aftur vín!!!
Aumingja Óli króna ákvað að hvíla sig á drykkjunni og hætti því í vínpottinum...en viti menn hans tala kom upp á laugardaginn mhuuuaaaaaaaa þannig að potturinn verður tvöfaldur næst og það væri mjög gott ef ég (Dagga) fengi hann.... en annars verður þetta njög spennandi næst....
8.10.2009 | 10:11
Nýir meðlimir í vínpottinum!!!!!
Þá eru allar tölurnar í notkun...spennóooo en Óli Króna og teindapabbi hans, Otri, tóku síðustu tölurnar en
Gunna er með 0
Olga með 1
Óli Króna með 2
Otri með 3
Ragnheiður með 4
Áslaug með 5
Brynhildur með 6
María með 7
Dagga með 8
Ásdís með 9
2.10.2009 | 17:51
Vínpotturinn
Við erum nú alveg glötuð í að blogga hér vinir en nú reynum við að bæta úr því....er það ekki... en ég ætla að minna ykkur á vínpottinn á morgun..muna að skila inn svo að talan ykkar sé virk
en svo finnst mér að við verðum að fara að hittast...kannski bara að fara að halda saumó.....
Kveðja Dagga
21.5.2009 | 20:36
Myndir Myndir
Jæja loksins eru allar (þær skástu híhí) myndirnar komnar úr partýinu hjá Brynhildi
kveðja Dagga
2.5.2009 | 19:11
Fyrsti dráttur vínpottsins!!!!!!
Þá er búið að draga úr pottinum...og ef það fór fram hjá einhverjum þá er síðasta talan í joker notuð fysta laugardag í mánuði notuð, og í kvöld var það 8..........
Þeir sem eru memm eru :
Árný nr 3
Ásdís nr 9
María nr 7
Olga nr 1
Gunna nr 0
Dagga nr 8
Brynhildur nr 6
Þannig að Dagga vann...til hamingju þá er bara að detta í heimsókn til hennar og henta sér í pottinn og fá sér í glas....
31.3.2009 | 16:26
VÍNKLÚBBUR
Hæ þið!!
Ég var að hugsa hvort að það væri ekki brilliant að stofna vínpott???? Var að hugsa að við mundum láta 1 flösku af rauðvíni, hvítvíni, líkjör eða kippu af bjór eða eitthvað annað gott og mundum nota JOKERINN í lotto fyrsta laugardag í mán og síðasta talan myndi vinna Hvað segiði um það mínir kæru vinir
en það geta bara verið 10 eða færri með
Kveðja Dagga
17.3.2009 | 20:33
Grímudagurinn mikli....
jæja jæja þá er alveg að koma að okkar árlega grímudegi... auðvitað verður hann aftur hjá mér hósthóst ég hélt að það ætti að skiptast á hehehehe en allavega hjá mér næsta laugardag kl 1 (er það ekki góður tími ???commeta ef ekki )ALLIR að mæta í búning, berjum kötinn og étum eins og svín (svo að það sé hægt að berja köttinn og fá eitthvað gott var ég að hugsa um 500-700 krónur á fjölskyldu og svo að við getum étið eins og svín þá koma allir með eitthvað á borðið)
Ef það eru engar athugasemdir þá sjáumst við á laugardaginn
12.2.2009 | 11:25
Hvernig á að gleðja elskuna ???
27.1.2009 | 20:18
Allir að læra
Það er akki nokkurn mann að sjá og ef marka má virknina á síðunni þá eru allir önnumkafnir í námi, heimilisstörfum, uppeldi eða uppteknir við að fylgjast með fréttum. Spurning hvort ekki eigi að stefna á að hafa kosninga partý hummm hver´vil ???????????? allavega er ekkert talað um annað en stjórnmál og námsefni haaaaaahaaaaaaaahaaaa
KV Á