Færsluflokkur: Bloggar

Takk fyrir síðast stelpur þetta var æði:)

Úff jæja hvernig líður ykkur er einhver þynnka í ganga, það hlýtur að vera miðað við allt áfengið sem var hellt oní  okkur, já hann Kári var sko alveg að standa sig sem gestgjafi, hann var í  því að bæta á víni hjá liðinu, fólk var ekki búið með drykkina sína þá var komin nýr. Þetta var alveg frábært,æðislegur matur og góður félagsskapur. Enn ég er búin að setja inn myndir frá kvöldinu og þá má engin láta þær fram hjá sér fara. Uppákoman hjá honum Bjögga mínum var sko alveg að gefa sig, þetta var geðveikt fyndið, það lá við að liðið hefði legið í gólfinu í krampa. Hann er ótrúlegur það sem honum dettur í hug, hehe.  Enn takk kærlega fyrir okkur Tobba mín það var svaka stuð og þetta heppnaðist mjög vel. kv. María


Afmælið hennar Tobbu

Jæja þá er afmælið hennar Tobbu núna annað kvöld. Endilega verið dugleg að taka myndir og segja frá kvöldinu.

Vinirnir

Jæja þá er loksins komið að því....síðan er að fæðast. þessi síða verður samantekt eða yfirlit yfir atburði og skemmtanir sem vinirnir standa fyrir. Við verðum að reyna að hafa eins mikið af myndum og við getum til að halda þessari síðu á lífi. En endilega komið með athugasemdir og innlegg. Ef þið viljið setja myndir á síðuna þá getið þið farið undir sjórnborð hér efst og sett þær inn sjálf, bara búa til albúm eða beðið mig um það, senda þær þá á meilið arnyl@internet.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband