JÓLAHLAÐBORÐ VS JÓLAMATARBOÐ

Jæja nú þurfum við að ákveða okkur hvað við ætlum að gera, jólahlaðborð eða jólamatarboð.  Það er líka hægt að panta heim jólhlaðborð, það gæti kannski verið það sniðugasta og örugglega ódýrast!!!! En við þurfum að ákveða okkur NÚNA BlushErrm  Held að 15 des hafi hentað flestum........

Kveðja Dagga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já það þarf að fara að ákveða þetta. Þetta gleymdist víst að ræða í síðasta saumaklúbb, kannski ekkert skrýtið,við vorum svo uppteknar að slúðra um hana Olgu okkar hehe  Reyndar get ég ekki ákveðið mig, held samt að ég væri mest til í tilbúið jólahlaðborð heim. Og svo yrði geðveikt ef það yrði ball annaðhvort í hlégarði eða á players þá gætum við skellt okkur þangað. En já þá væri kannski sniðugara að fara á jólahlaðborð í bænum arggggg  ég get ekki ákveðið mig. Come on stelpur komið með athugasemdi um það sem þið viljið áður en það verður of seint, ég gæti nefnilega lent á hæli ef ég reyni svona mikið á heilan, hann er svo óvanur því. kv. Maria óákveðna

maría (IP-tala skráð) 13.11.2006 kl. 19:05

2 identicon

var að tjekka á böllum þann 15 des. Paparnir eru á players og sálin á nasa kv.maría

maria (IP-tala skráð) 13.11.2006 kl. 19:17

3 Smámynd: Vinirnir

Ein tillaga....

 Verðum heima hjá Döggu og magga...eða Maríu og Bjögga...megið  rífast um það....hver á besta  partý   húsið. eldum eða pöntum mat, fáum rútu leigða og förum á papana á players....geggjað plan. hvernig finnst ykkur....

kveðja Árný mega blaðrari....talaði nonstopp í saumó...enda alveg orðlaus núna...

Vinirnir, 13.11.2006 kl. 22:44

4 Smámynd: Vinirnir

uuuuuuuuuuuhhhhhhhhhuuuuuuuuu  talandi un óákveðni ???????????

kv Ásdís

Vinirnir, 14.11.2006 kl. 09:37

5 identicon

Jæja María ertu búin að steikja heilann eða..... híhí en ég held að það sé sniðugast og einfaldast og örugglega ódýrast að panta mat heim frá einhverri veisluþjónustu þarf að ath. verð, geri það í dag

kv Dagga

dagga (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 10:30

6 identicon

eruð þið að tapa ykkur????'  ég er alveg til í papaball...mikið meira en til í það...svo er spurning er ekki orðið helvíti dýrt að panta rútu og mat er það ekki bara sama verð og að fara eitthvert????????????'Held ég sé gáfuðust sjáið hvað ég pæli mikið hehe..er ég ekki klárust Arný..er klárari en þú hehe  komdu í smá netfighting hihi

olga (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 15:40

7 identicon

Þetta er það sem Veislann býður uppá og það kostar 3190 á mann

 Kalt:Reyklaxamosaik með sítrónusósuHeitreyktur silungur á eggjahræru

Koníaksgrafinn lax með dillsósu

 Tómat- og portvínssíld, karrýsíld og jólasíldReykt jólaskinkaDönsk lifrakæfa m/sveppum og beikon Jólapaté með sherrýrúsínum Heitt:Svína- purusteikVillibráðakjötbollurKraftsósaSykurbrúnaðar kartöflur MeðlætiEplasalat, kartöflusalat, heimalagað rauðkál, sýrt grænmeti, nýbökuð brauð, rúgbrauð og smjör. Eftirréttur (val um 2 eftirrétti)1)  Ostaterta með skógarberjum2)  Jóla- drumbur með grandmariner

3)  Ris a la mande með kirsjuberjasósu

Þetta er það sem Kokkarnir bjóða uppá

Grafinn lax með sinnepssósu

Villibráðarpaté með cumberlandsósu

Karrísíld

Jólasíld

Marineraðir sjávarréttir í balsamic

Hunangssveitaskinka

Hangikjöt

Lifrarkæfa með beikoni og sveppum HeittPurusteik með sykurbrúnuðum kartöflum Meðlæti:Uppstúf, laufabrauð, rauðkál, grænar baunir, flatkökur, rúgbrauð, nýbakað brauð, kartöflusalat, smjör, Waldorf salat, kartöflur 

Desertar

Riz a la mande með berjasósu

kostar 3300 á mann hef ekki fengið svar frá fleirum

dagga (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 15:58

8 identicon

já já Olga þú ert gáfaðari en Árný...Árný þú ert mikið betur gefin en Olga úffffff búin að þessu híhí  en ef við pöntum heim svo þeir sem vilja fara á Papana geta tekið leigarra þá myndi það vera um 1000 kr á mann í bíl og um 3000 í mat...svo audda vín...held að þetta sé ódýrast og einfaldast...þurfum ekki að hafa fyrir þessu...þ.e.a.s flest okkar hehe  held svei mér þá að ég sé gáfuðust af ykkur öllum

dagga (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 16:05

9 Smámynd: Vinirnir

Hæ hæ eruð þið alveg að tapa ykkur gellur!!!!en okkur Elsu líst bara vel á þetta plan,þannig að gerið ráð fyrir okkur

Vinirnir, 15.11.2006 kl. 00:02

10 Smámynd: Vinirnir

Flott plan lýst vel á ykkur og bíddu ég er alveg dottin út var ég ekki snillin hér ha? 

kv Ásdís

Vinirnir, 15.11.2006 kl. 10:44

11 identicon

já líst vel á þetta. Eigum við þá ekki bara að segja að þetta sé ákveðið. Þetta yrði kannski um ca 7 tús kallinn á mann með öllu mat, víni og balli ég held að það sé bara vel sloppið. þetta er nú voða svipaður matseðill hja kokkunum og veislunni er það ekki bara ugla sat á kvisti með það, já og pant EKKI halda þetta heima hjá mér hehe  HVER BÝÐUR FRAM ÍBÚÐINA SÍNA ???

maría (IP-tala skráð) 15.11.2006 kl. 18:10

12 Smámynd: Vinirnir

Herru ég er til í að halda þetta heima hjá mér,þá erum við nær bænum.Hvernig líst ykkur á það.

Vinirnir, 16.11.2006 kl. 00:10

13 Smámynd: Vinirnir

Þetta er ég Tobba gleymdi að taka það fram!!

Vinirnir, 16.11.2006 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband